25.7.07

 

Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson


Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson opnar sýningu í DaLí Gallery laugardaginn 28. júlí kl.17.

Hildur sýnir teikningar og myndir ofnar úr silki þar sem hún fæst við mörk abstrakt og raunsæis og skapar þar áhugaverða spennu í verkum sinum.

Hildur er búsett í Cleveland, Ohio í Bandaríkjunum. En þar lauk hún BFA og MFA gráðu frá Kent State uneversity, útskrifaðist frá Cleveland Institute of Art og lauk arkitektúr námi frá Kent State University.

Sýning Hildar stendur til 12. ágúst.

10.7.07

 

Helgi Kristinsson sýnir ,,Sound Orb"




Helgi Kistinsson opnar sýningu sína ,,Sound Orb" í DaLí Gallery laugardaginn 14. júlí kl. 17. Verk hans Sound Orb er innsetning og hljóðverk í viðkvæmum gifskúlum sem áhorfandi/hlustandi getur handfjatlað og lagt við hlustir hljóð hverrar kúlu fyrir sig. Listamaðurinn setur fram spurningar um rými og tilvist þess og skapar í leiðinni ákveðið andrúmsloft fyllt hljóðum. Sýningin stendur til 27.júlí.







This page is powered by Blogger. Isn't yours?