3.12.07
Grálist með smálist
Grálist með smálist er samsýning í DaLí Gallery í desember. Grálista-hópurinn verður með smálistagjörning á myndbandi. Ekkert smáverk verður stærra en 20×20 cm og má þar líta smálistasafn Grálista-hópsins. Opnun verður laugardaginn 8. desember og er opið kl. 14-17 og alla föstudaga og laugardaga fram að jólum.