24.8.09
Akureyrarvaka á DaLí
Á Akureyrarvöku verður líflegt á DaLí Gallery og á vinnustofu DaLí. Það er opið gestum Akureyrarvöku kl. 14-17 og svo aftur um kvöldið frá kl.20-00.
Dagskrá Akureyrarvöku á DaLí:
Edda Þórey Kristfinnsdóttir og sýning hennar Vistaskipti. Síðustu forvöð og lokadagur sýningarinnar.
Steinn Kristjánsson verður með málverkasýningu í litla galleríinu KOM INN sem er litla rýmið á vinnustofu DaLí.
DaLíurnar pakka inn saumavél á súrrealíska vísu og verður heitt kakó í boði fyrir gesti gallerísins og sköpunarveggur þar sem má tjá sig á listrænan hátt.
Allir velkomnir.
12.8.09
Edda Þórey Kristfinnsdóttir og Vistaskipti
Edda Þórey Kristfinnsdóttir opnar myndlistasýninguna Vistaskipti í DaLí Gallery á Akureyri, laugardaginn 15. Ágúst kl. 15-17. Sýning Eddu Þóreyjar Vistaskipti fjallar um hið eilífa ferðalag okkar mannfólksins, vist á ólíkum stöðum og mismunandi áhrif umhverfis þeirra.
Sýningin stendur fram yfir Akureyrarvöku, menningarhátíð Akureyrarbæjar, til 29. ágúst. Opið laugardaga og sunnudaga k.14-17 og á Akureyrarvöku 14-17 og 20-00.
Allir velkomnir
Já
Mitt í hamingjunni
Blikka viðvörunarljós
Óreiða, skelfing , hrun
Gulir, rauðir, grænir, bláir
Englar himins gráta
Já
Mitt í hamingjunni
Mitt í hamingjunni
Blikka viðvörunarljós
Óreiða, skelfing , hrun
Gulir, rauðir, grænir, bláir
Englar himins gráta
Já
Mitt í hamingjunni