16.7.08

 

Anna Mields


Þýska listakonan Anna Mields opnar myndlistasýningu í DaLí Gallery laugardaginn 19.júlí kl. 17.


Anna Mields dvelst nú á gestavinnustofu Gilfélagsins og er þekkt fyrir að vinna út frá hefðbundnu kyrralífi og fetisma. Í DaLí Gallery fjallar hún um hina ímynduðu fertugu konu Sibille Scmidt frá A -Þýskalandi, tilfinningalíf hennar og sterialtýpu síns tíma.


DaLí gallery er opið laugardaga og sunnudaga kl.14-17 meðan sýningar standa yfir. Sýning Önnu Mields er til 31. júlí.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?